Athugið: Farið í Portfolio til að skoða myndir og Galleries til að skoða myndatökur.

Ljósmyndastofan Nærmynd býður upp á myndatökur í stúdíói. Annars vegar 12 myndir (13x18) í A4 albúmi á afar sanngjörnu verði, og hins vegar Nærmynd portfólíó, sem er líf mitt og yndi. Þar er ég að bjóða upp á svarthvítt portrett þar sem áhersla er lögð á ljós og skugga og hinn fullkomna gráskala. Myndirnar eru áritaðar af höfundi.
 
Nærmynd Portfólíó er að mínu viti kærkomið fyrir þá sem hafa áhuga á að safna klassískri myndlist. Nærmynd portfólíó getur verið mynd af; börnum, barnabörnum, pabba og mömmu, afa og ömmu, móðir og barn eða faðir og sonur, nýfætt barn eða ófætt barn í móðurkviði. -Hugmyndaflugið er í raun eina hindrunin.

Ljósmyndastofan hefur flutt í glæsilega vinnustofu á 3 hæð (lyfta) í sama húsi á laugavegi 178. Gjörið svo vel að panta tíma í síma 568 9220 eða 895 9220